20 février 2012
HÆKUSVEIGUR: TUNGL OG ÁST

veður í skýjum
ýmist fullt hálft eða nýtt
speglar sig spegill
hefur upp hafið
kippir í sálir okkar
kvikt himnasilfur
ósýnilegt afl
tengir örlagaþræði
sveigir ástarstál
sem stjörnublik bjart
vafurloga ég þráði
bálinu unni
leiðarstjarna lífs
leiftur þitt á jörðu hér:
eldur í augum
(sent til Ástarljóðasamkeppni Sölku og Eymundsson - 3. verðlaun)
Publicité
Commentaires